Hafa samband

Forsíða / Persónuvernd

Persónuvernd

Hér stendur hvaða upplýsingum Stafvit safnar í gegnum þennan vef og til hvers þær eru notaðar.

Hver ber ábyrgð

Stafvit ber ábyrgð á vinnslunni. Daníel K. svarar öllum spurningum um persónuvernd: grandozg@gmail.com eða í síma 661 1375.

Það sem þú sendir okkur

Þegar þú fyllir út formið á síðunni Hafa samband fáum við nafn, fyrirtæki, netfang, símanúmer og skilaboðin þín. Við notum þetta eingöngu til að svara fyrirspurninni og vinna verkið ef af því verður.

Mælingar og vefkökur

Ef þú samþykkir vefkökur notum við Google Analytics til að sjá hvaða síður eru skoðaðar og hvaðan gestir koma. Ef þú hafnar eru engar mælingakökur settar og vefurinn virkar eins.

Hverjir fá upplýsingarnar

Netlify hýsir vefinn og tekur við því sem sent er í gegnum formið. Google vinnur mælingagögnin. Við seljum engum upplýsingar og notum þær ekki í öðrum tilgangi.

Réttindi þín

Þú getur beðið um að sjá upplýsingarnar sem við höfum um þig, látið leiðrétta þær eða láta eyða þeim. Þú getur líka sent kvörtun til Persónuverndar.