Verð
Einnar síðu vefur
69.000 kr.Ein síða með texta, myndum og fyrirspurnarformi.
Fyrirtækjavefur
um 129.000 kr.Nokkrar undirsíður, fyrirspurnarform og umsagnir.
Flókinn vefur
frá 199.000 kr.Mörg tungumál, reiknivélar og bókunarform.
Öll verð eru án VSK. Verðin miðast við verkefni af meðalstærð með hefðbundnum kröfum. Mjög einfaldur vefur eða mjög einfalt app getur kostað talsvert minna.
Fylgir hverjum vef án aukagjalds
- Leitarvélabestun (SEO), svo vefurinn finnist á Google.
- Sitemap og structured data, svo leitarvélar lesi vefinn rétt.
- Skýrir hnappar (CTA) á hverri síðu, svo gesturinn viti alltaf hvert næsta skref er.
- Léttur og vandaður kóði, svo vefurinn hleðst hratt.
Reynt í eigin rekstri
Okkar eigin vefur, flutningslausnir.is, er um 13 síður á 6 tungumálum, með 3 reiknivélum, fyrirspurnar- og bókunarformi og umsagnaformi.
Svona gengur þetta fyrir sig
Símtal
Þú segir okkur hvað þig vantar.
Tímamat
Þú færð áætlun í klukkustundum og verð áður en við byrjum.
Smíði
Við smíðum verkið.
Yfirferð
Þú skoðar og biður um breytingar.
Opnun
Verkið fer í loftið.
Algengar spurningar
Hvað kostar vefsíða hjá Stafviti?
Einnar síðu vefur kostar 69.000 kr. án VSK á föstu verði. Stærri vefir eru rukkaðir eftir tímagjaldi, 19.500 kr. á klukkustund, og fyrirtækjavefur er áætlaður um 129.000 kr. Þú færð tímamat áður en verkið hefst.
Hvað tekur vefsíðugerðin langan tíma?
Einnar síðu vefur er tilbúinn á 24 klukkustundum og fyrirtækjavefur á um viku. Flóknari vefir fara eftir umfangi.
Er vefurinn smíðaður með gervigreind?
Já. Gervigreind skrifar kóðann og Daníel fer yfir hvert verk áður en það fer í loftið. Þess vegna er afhendingin hröð og verðið lágt.
Finnst vefurinn minn á Google?
Leitarvélabestun, sitemap og structured data fylgja hverjum vef án aukagjalds. Google mæling er seld sér. Enginn getur lofað ákveðnu sæti á Google, en vefurinn er rétt settur upp frá fyrsta degi.
Hvað ef ég vil breyta einhverju eftir opnun?
Þú sendir tölvupóst með breytingunni. Hún er unnin, yfirfarin og fer í loftið þegar hún hefur verið samþykkt. Lagfæringar kosta 19.500 kr. á klukkustund án VSK.
Takið þið prósentu af bókunum eða sölu?
Nei. Þú greiðir fyrir uppsetninguna og ekkert af bókunum eða sölu.
Eigum við að byrja?
Segðu okkur hvað þig vantar og fáðu tímamat áður en nokkuð er rukkað.
661 1375Daníel svarar sjálfur. Þú getur líka sent póst á grandozg@gmail.com.